Franska spítalanum breytt í hótel

Sögufrægt en niðurnítt hús í utanverðum Fáskrúðsfirði verður að líkindum orðið að glæsihóteli innan fárra ára. Til stendur að flytja húsið fjöl fyrir fjöl á upprunalegar slóðir inni í þorpinu en það hefur staðið autt og yfirgefið í nær hálfa öld.

Franski spítalinn er á Hafnarnesi í Fáskrúðsfirði en hann var byggður inni í þorpi árið 1903 og þjónaði þar frönskum fiskimönnum sem stunduðu veiðar við Ísland.

Árið 1939, þegar veiðar Frakkanna höfðu að mestu lagst af, var spítalinn tekinn niður fjöl fyrir fjöl og fluttur úr þorpinu á Hafnarnes. Þar hafði myndast vísir að útgerðarþorpi en húsnæði sárvantaði.

Nú hafa Minjavernd og sveitarfélagið Fjarðabyggð tekið höndum saman við vinabæ Fáskrúðsfjarðar í Frakklandi, Gravelines og Alliance Francaise á Íslandi um að endurbyggja spítalann og flytja aftur inn í þorp. Þar á hann að hýsa hótel og veitingastað. Auk spítalans verða endurreist kapella og sjúkraskýli sem áður stóðu í námunda við spítalann - og líkhús, sem hugsanlega gæti orðið aðalsvíta hótelsins. Verkið verður að mestu fjármagnað með styrkjum sem Minjavernd aflar í samstarfi við Graveline og Fjarðabyggð.

Þorsteinn Bergsson, framkvæmdastjóri Minjaverndar, segir að ef allt gangi að óskum verði hægt að hefjast handa við flutning spítalans síðla næsta sumars. Áætlað er að verkið muni kosta um 400 milljónir króna og taki um tvö ár í framkvæmd.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka