Fílahjörð á röltinu í Washington

Það er ekki á hverjum degi sem fílahjörð sést á rölti fyrir utan þinghúsið í Washington. Það var þó einmitt það sem borgarbúar urðu vitni að í gær.
Það er orðinn árlegur viðburður að fílar úr sirkusum Ringley bræðra og Barnum og Bailey gangi fylktu liði í gegnum miðborg Washington um miðjan marsmánuð. Götum er ávalt lokað fyrir bílaumferð á meðan þessi sérstaka skrúðganga fer þarna í gegn og lamar hún því allt atvinnulíf í miðborginni í nokkrar klukkustundir.
Fílarnir eru engu að síður feikivinsælir meðal borgarbúa og tugir þúsunda höfðu komið sér fyrir á mismunandi stöðum til að fylgjast með þeim ganga framhjá. Jafnt börnum sem fullorðnum þótti mikið til skepnanna koma. Ekki var fótgangur þeirra sérlega lipur en dýrin voru greinilega vel þjálfuð og veittu atgangi áhorfenda litla athygli.
Fílarnir sjö munu leggja af stað í þennan sama leiðangur á næsta ári en þá er spurning hvort þeir verði búnir að taka sér einn til viðbótar - hafi þeim þótt takturinn heldur tómlegur í ár.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







