Björk aftur í kvikmyndirnar?
Fyrst birt: 17.03.2010 18:19 GMT, Síðast uppfært: 17.03.2010 22:49 GMT

Björk Guðmundsdóttir hefur ekki sagt skilið við kvikmyndirnar, ef marka má viðtal við franska kvikmyndaleikstjórann Michel Gondry, á South by Southwest kvikmyndahátíðinni, sem nú stendur yfir í Texas í Bandaríkjunum. Gondry, sem líklega er þekktastur fyrir mynd sína Eternal Sunshine of the Spotless Mind, segir í bígerð samvinnuverkefni hans og söngkonunnar. Hann lýsir því sem nokkurs konar vísindasöngleik, sem ef til vill muni eiga betur heima á listasöfnum en í kvikmyndahúsum. Hann segist hlakka mikið til að vinna aftur með Björk, en þau Björk og Gondry hafa unnið saman að þó nokkrum verkefnum í gegnum tíðina.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







