Kim Larsen sendir frá sér plötu

Kim Larsen ætlar á næstunni að senda frá sér einherjaplötuna Dömur mínar og herrar. Þetta er í fyrsta sinn í þrjátíu og sjö ár sem listamaðurinn vinnur lög á hljómplötu, án þess að hafa hljómsveit sér til fulltingis, að því er segir í frétt frá menningardeild danska ríkisútvarpsins. Það sem meira er: Kim leikur á nánast öll hljóðfærin sem heyrist í á nýju plötunni.

Að sögn útgefandans kennir ýmissa grasa á Dömum mínum og herrum, allt frá barnalögum til dæmigerðs Kim Larsen-rokks. Platan kemur út þriðja maí.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka