Loftslagsátak með hjólreiðum

Hjólreiðar eru ein umhverfisvænasta leið mannfólksins til að komast á milli staða og eru Danir á meðal hjólaglöðustu þjóða heims. Nú hafa þeir ýtt úr vör nýju loftslagsátaki - Challenge 16 - í tengslum við næsta fund Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál, sem haldinn verður í Mexíkó í árslok. Fyrir hverja 16 hjólreiðamenn sem skrá sig til leiks verður gróðursett eitt tré og ættu Danir því að vera komnir með álitlegan hjólaskóg í haust. Átakið hófst í gær og stendur til 16. nóvember.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka