Bíósýning til styrktar Stígamótum

Efnt verður til styrktarsýningar á kvikmyndinni Precious í Háskólabíói miðvikudag klukkan 20. Aðgangseyrir rennur óskiptur til Stígamóta, en samtökin héldu nýverið upp á 20 ára starfsafmæli.

Kvikmyndin, sem hlaut tvenn Óskarsverðlaun á dögunum, fjallar um unglingsstúlku sem hefur mátt þola kynferðislega misnotkun af hálfu föður síns og andlegt og líkamlegt ofbeldi af hendi móður sinnar. Mentor og Ólafía, nemendafélög nema í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands, í samstarfi við Myndform, Græna ljósið og Háskólabíó efna til styrktarsýningarinnar.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka