ABBA tekin í Frægðarhöll rokksins

Anni-Frid og Benny Andersson úr Abba. Mynd: Nordic photos/AFP
Sænska hljómsveitin ABBA var í gærkvöld valin í Rock and Roll Hall of Fame, Frægðarhöll rokksins, við athöfn í New York.
ABBA var meðal fjölmargra rokk- og popptónlistarmanna sem voru valin í Frægðarhöllina, sem þykir mikill heiður meðal tónlistarmanna. Benny Anderson og Anni-Frid Lyngstad þökkuðu heiðurinn, Anderson sagði að mörgum hefði þótt klæðnaður þeirra fjórmenninga skrautlegur og þau hefðu verið framandi.
Benny Anderson sagði að þau væru þakklát fyrir að tónlist þeirra væri enn spiluð. Anni-Frid sagði að hún hefði gaman af því að hlusta á ABBA tónlistina núna, hún væri orðin nógu gömul til að viðurkenna að þau hefðu búið til frábæra tónlist.
ABBA hafa ekki leikið opinberlega frá því 1982 og segjast aldrei ætla að gera það aftur.
Genesis og Jimmy Cliff voru valin í Frægðarhöllin sem og the Stooges sem komu til Íslands fyrir nokkrum árum. Þeir tóku lagið með Iggy Popp í broddi fylkingar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







