Aurora veitir 100 milljónir í styrk

Frá vinstri: Hulda Kristín Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Auroru velgerðasjóðs, Eldar Ástþórsson, framkvæmdastjóri Kraums tónlistarsjóðs, Þórunn Sigurðardóttir, stjórnarmaður í Auroru velgerðarsjóði, Hildur Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Brúðuheima í Borgarnesi, Bergsteinn Jónsson, verkefnastjóri skóla- og ungmennastarfs hjá UNICEF á Íslandi, Ingibjörg Kristjánsdóttir, stjórnarformaður Auroru velgerðasjóðs, og Hlín Helga Guðlaugsdóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarsjóðs Auroru.

Brúðuheimar í Borgarnesi, lista- og menningarmiðstöð, fá 15 milljónir króna úr Auroru velgjörðarsjóði. Sjóðurinn tilkynnti í dag um úthlutun alls 100 milljóna til fjögurra verkefna á Íslandi og í Afríku. Þrjú verkefnanna fá nú styrk úr sjóðnum í annað eða þriðja sinn; Hönnunarsjóður Auroru fær 25 milljónir, Kraumur - tónlistarstjóður Auroru fær tuttugu milljónir og menntaverkefni í Síerra Leóne fær 40 milljónir króna.

 Brúðuheimar eru nýtt styrktarverkefni sjóðsins, þeir fá 15 milljónir króna til uppbyggingar lista og menningarmiðstöðvar í Englendingavík í Borgarnesi, þar af eru sjö milljónir í formi láns.

Frá stofnun, fyrir þremur árum, hefur Aurora velgerðasjóður ráðstafað alls 322,5 milljónum króna til 11 verkefna. Sjóðinn stofnuðu hjónin Ingibjörg Kristjánsdóttir og Ólafur Ólafsson fyrir þremur árum og lögðu til hans einn milljarð króna í stofnfé.

Bæði Hönnunarsjóður Auroru og Kraumur - tónlistarsjóður Auroru eru eins og nöfnin benda til dóttursjóðir Auroru. Menntaverkefnið í Sierra Leone hafa hjónin stutt undanfarin fjögur ár.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka