Fimmti hver treður í vör

Munntóbaksneysla.
Á meðan elsta kynslóðin fær sér í nefið upp á gamla mátann bisa ungmennin við að koma neftóbakinu í vörina. Einn af hverjum fimm strákum á aldrinum 16 til 23 ára segist taka í vörina, flestir daglega.
Neysla neftóbaks hefur aukist mjög síðasta áratug og svo virðist sem það njóti sífellt meiri vinsælda að taka neftóbak í vörina. Sölutölur ÁTVR tala sínu máli en í fyrra voru seld tæp 24 tonn af neftóbaki en aðeins rúm 10 tonn aldamótaárið 2000.
Lýðheilsustöð gerði í fyrra könnun á notkun munntóbaks meðal ungmenna á aldrinum 16 til 23 ára. Könnunin leiddi í ljóst að 20 prósent pilta notuðu munntóbak og fimmtán prósent þeirra gerðu það daglega. Neyslan er kynbundin því mun færri stúlkur nota munntóbak eða eitt prósent.
Tæp 80% þeirra sem taka í vörina nota einvörðungu íslenskt neftóbak til þess arna aðrir ýmist það eða innflutt munntóbak. Þess má geta að innflutningur á munntóbaki er bannaður.
Svipuð rannsókn var gerð árið 2007. Þá játtu rúm 7% karla því að nota munntóbak daglega og tæp 9% sögðust gera það öðru hvoru, samtals 16%. Tollgæslan tók rúm 63 kíló af nef- og munntóbaki sem reynt var að smygla til landsins í fyrra. Samkvæmt upplýsingum frá Lýðheilsustöð verða notendur nef- og munntóbaks mjög háðir efnunum þar sem upptaka nikótíns í líkamann er mjög mikil.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







