„Þvingun af versta tagi“

Mynd: www.shutterstock.com

Loftur Jóhannsson, formaður samninganefndar flugumferðarstjóra, segir að það hafi verið þvingun af versta tagi þegar ríkisstjórnin boðaði lög á verkfall flugumferðarstjóra. Hann hafi orðið fyrir miklum vonbrigðum með þessa vinstristjórn vinnandi stétta. Hún sé að fremja mannréttindabrot. Aðspurður um hvort flugumferðastjórar hafi ekki litla samúð eins og staðan er í þjóðfélaginu sagði hann að hann hefði ekki hugmynd um hvernig stemmningin fyrir aðgerðum þeirra sé; þeir séu í kjarabaráttu.

Alþingismenn voru mættir með stuttum fyrirvara á þingfund sem hefjast átti klukkan hálfátta þar sem taka átti fyrir frumvarp sem binda átti enda á verkfall flugumferðarstjóra. Ríkisstjórn og þingflokkar höfðu þá fundað um frumvarpið. Af því varð ekki því flugumferðarstjórar aflýstu verkfalli sem boðað var á morgun og mánudag.

Loftur segir flugumferðarstjóra vilja fá sambærilegan samning og nýlega var gerður við flugmenn þótt flugumferðarstjórar fari ekki fram á sömu laun.

Flugumferðarstjórar hafa ekki aflýst boðuðum verkföllum á miðvikudag og föstudag í næstu viku. Á stjórnarandstæðingum í Kastljósi var að heyra í kvöld að þeir myndu styðja lög á verkfall á flugumferðarstjóra kæmi til þess í næstu viku.

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka