Ákvörðun um aðildarviðræður seinkar

Nánast engar líkur eru á að ráðherraráð Evrópusambandsins geti ákveðið aðildarviðræður við Ísland á fundi sínum í lok mars, þar sem þýska þingið getur ekki greitt atkvæði um málið fyrr en í apríllok eða jafnvel maí. Samkvæmt Lissabon-sáttmálunum verða þjóðþing Evrópusambandsríkja að veita samþykki sitt fyrir aðildarviðræðum. Þingmenn úr Evrópunefnd þýska þingsins eru hér á landi til að ræða Evrópumál og þeir sjá engin vandkvæði á umsókn Íslands. Þverpólitísk samstaða er í Þýskalandi um að Ísland eigi heima í sambandinu. Þingmennirnir segja Icesave-deiluna ekki munu hafa áhrif á afgreiðslu þýska þingsins en mikilvægt sé þó að ljúka málinu sem fyrst.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka