Nær því að lánin verði greidd

Óvíst er hvort Norðurlöndin greiða út lán sín til Íslands á næstunni. Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, lýsti því hins vegar yfir í dag, að Icesave deilan ætti ekki að tefja aðstoð AGS.
Utanríkisráðherrar Norðurlandanna hittust á fundi í Kaupmannahöfn í dag. Þar voru öryggismál og önnur sameiginleg hagsmunamál á dagskrá. Fyrst málið sem var rætt var Icesave deilan. Norðurlandaþjóðirnar hafa ekki viljað afgreiða um 260 milljarða króna lán til Íslands fyrr en Icesave-deilan er leyst. Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hefur einnig frestað annarri endurskoðun áætlunar sinnar. En nú hafa Norðmenn mildast í afstöðu sinni.
Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, sagði á blaðamannafundi eftir ráðherrafundinn að það væri skoðun Norðmanna að svo lengi sem Ísland uppfylli skilyrði AGS þá verði sjóðurinn að halda sig við áætlunina óháð Icesave-deilunni við Breta og Hollendinga.
Hinir ráðherrarnir vildu ekki ganga eins langt. Lene Esperssen utanríkisráðherra Danmerkur sagði að ekki væri verið að tal um nýtt frumkvæði heldur staðfestingu á því að það sé mikilvægt fyrir Norðurlöndin að endurreisnin geti hafist á Íslandi.
Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar hafnaði því að norðurlöndin hefðu látið Breta og Hollendinga ráða för til þess að þvinga Íslendinga til vafasams samkomulags um Icesave. Margir milljarðar af skattfé hefðu verið lagðir í að hjálpa Íslendingum fyrir utan aðra alþjóðlega aðstoð sem Íslendingar hefðu fengið. Þó að Norðurlöndin hafi látið mikið af hendi rakna dugi það ekki. Önnur ríki verði einnig að hjálpa til og skilyrði fyrir því sé að önnur deilumál séu leyst. Þar komi norræna samstafið ekki að gagni.
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sagðist ekkert geta sagt til um hvort afstaða starfsbræðra sinna þýddi að lánin yrði greidd út óháð Icesave. En menn séu núna meira en hænufeti nær því að svo verði.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







