Heimafyrirtæki fengu 90% fjárins

Anna Kristín Ólafsdóttir, stjórnarformaður Vatnajökulsþjóðgarðs, segir ekki rétt að farið hafi verið gegn markmiðum þjóðgarðsins þó að fyrirtæki í Reykjavík hafi verið ráðið í tímabundið verkefni. Mikil vinna fari eftir sem áður fram á heimasvæðum þjóðgarðsins.

Sveitarstjóri Skútustaðahrepps gagnrýndi í gær þá ákvörðun stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs að ráða ráðgjafafyrirtækið Alta í Reykjavík til að ljúka gerð verndaráætlunar fyrir þjóðgarðinn. Með því væri verið að ganga framhjá hæfu fólki heima í héraði. Umrædd verndaráætlun samanstendur af fjórum skýrslum sem unnar hafa verið af sérfræðingum á þremur heimasvæðum þjóðgarðsins undanfarna 18 mánuði. 

Anna Kristín Ólafsdóttir, formaður stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs, segir að fyrir þá vinnu hafi þrír aðilar fengið greidd 90% af þeim 40 milljónum sem ætlaðar hafi verið til verksins. Hún ver þá ákvörðun að ráða reykvískt fyrirtæki til að ljúka verkinu og segir að stjórninni hafi fundist æskilegt að þegar kom að því að prjóna saman í eitt plagg fjórar skýrslur sem telji hundruð blaðsíðna hver að nýtt fyrirtæki yrði fengið til þess frekar en eitt af stofnununum sem voru að vinna þetta undanfenga mánuði.

Gagnrýnin á stjórn þjóðgarðsins beinist einnig að því að framkvæmdastjórinn skuli búsettur í Reykjavík. Það segir Anna Kristín eðlilegt, enda hafi starfið verið auglýst án staðsetningar. Stjórn þjóðgarðsins hafi bókað að staðsetning framkvæmdastjórans myndi ráðast af heimilisfesti hæfasta umsækjandans. Ef hann hefði búið í Skútustaðahreppi til dæmis þá sæti framkvæmdastjórinn þar.  

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka