Fjármálin á hreint fyrir sameiningu

Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, segir augljóst að færa þurfi fjármál Álftaness til betri vegar áður en farið verður að ræða sameiningu við annað sveitarfélag.
Nýleg skoðanakönnun á Álftanesi leiddi í ljós að meirihluti íbúa vill sameinast öðru sveitarfélagi. Tæplega helmingur vill sameinast Garðabæ og þriðjungur Reykjavík. Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi lagði fyrir þremur vikum fram tillögu um að Reykjavíkurborg óskaði eftir viðræðum við Álftaness um sameiningu sveitarfélaganna. Borgarstjórn vísaði tillögunni frá. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri segir að afstaða borgarstjórnar sé sú að málið sé hjá Álftnesingum. Málefni sveitarfélagsins séu til meðferðar hjá ríkisvaldinu og í ferli þar. Ekki sé hægt að fella dóma um hvert framhaldið verður áður en því ljúki.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, sagði í gær að ekki væri skynsamlegt að auka álögur á Garðbæinga og draga úr lífsgæðum þeirra með því að sameinast Álftanesi áður en fjárhagsstaða þess hefði verið bætt. Hanna Birna tekur undir þetta og segir augljóst að óvissan um fjármál Álftnesinga verði að leysast fyrir þá og þá sem þeir myndu hugsanlega sameinast. Þá fyrst verði hægt að ræða málin af alvöru.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







