Stærsti skjálftinn til þessa
Fyrst birt: 11.03.2010 19:58 GMT, Síðast uppfært: 12.03.2010 05:51 GMT

Stærsti skjálftinn í hrinunni sem verið hefur undanfarið undir Eyjafjallajökli varð rétt fyrir klukkan fjögur í gær. Hann mældist 3 á Richter. Enn er stanslaus, jöfn og mikil jarðskjálftavirkni undir jöklinum.
Sigurlaug Hjaltadóttir, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir skjálftann í gær þann stærsta frá áramótum og litlu stærri en í skjálftann í síðustu viku sem mældist tæpir þrír. Enskir vísindamenn sem eru við mælingar við Gígjökul fundu vel fyrir skjálftanum í gær enda voru þeir nálægt upptökum hans. Flestir skjálftarnir eru á sjö til ellefu kílómetra dýpi. Enn er svonefnt fyrsta háskastig vegna skjálftanna.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







