Vilja stöðva sölu á ormalyfi

Mynd: www.shutterstock.is
Landssamband sauðfjárbænda krefst þess að sala á dýralyfinu Albencare verði stöðvuð á meðan áhrif þess eru rannsökuð. Grunur leikur á að lyfið valdi stórfelldu fósturláti í sauðfé.
Landsamband sauðfjárbænda tók að skoða notkun lyfsins Albencare, sem er ormalyf, í kjölfar þess að á bænum Brjánslæk á Barðaströnd kom upp stórfellt fósturlát í sauðfé nú í vetur. Við fósturtalningu fyrir skömmu kom í ljóst að um 70 af 650 ám eru lamblausar sem er mun hærra hlutfall en í meðalári og einnig eru tvöfalt fleiri ær einlembdar þar en í fyrra. Jóhann Pétur Ágústsson, bóndi á Brjánslæk, rekur fósturlátið til þess að hann notaði umrætt lyf í fyrsta skipti í vetur.
Sindri Sigurgeirsson, formaður Landssambands sauðfjárbænda, segir annað dæmi og eldra einnig til skoðunar en sama lyf var notað á bænum Gillastöðum árið 2008 og það vor var frjósemin mun minni en í eðlilegu ári og fjölmörg lömb fæddust vansköpuð. Sindri segir að Landssambandið hafi farið fram á það við Yfirdýralækni og Lyfjastofnun að gerð verði rannsókn á meðferð dýralyfsins Albencare. Hann segir lyfið hafa verið selt hér á landi til notkunar fyrir sauðfé en samkvæmt upplýsingum frá erlendum framleiðenda sé lyfið eingöngu ætlað fyrir nautgripi. Þá er farið fram á að lyfið verði tekið úr sölu á meðan rannsókn stendur yfir.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







