Áhyggjur Gísla af björgunarsveitum

Þetta er ekki mynd af björgunarsveitarmanni að aðstoða Gísla Einarsson. Þess hefur ekki enn gerst þörf.


  • Prenta
  • Senda frétt

Gísli Einarsson talaði um björgunarsveitir og mikilvægi þeirra. Björgunarsveitarmenn sinna útköllum launalaust, oft við erfiðar aðstæður.

Stundum eru útköllin óþörf eins og núna um helgina þegar lengi var leitað að konu sem ekki var týnd.

Gísli hefur áhyggjur af því að nú eigi að loka æfingarbúðunum Landsbjargar á Gufuskálum vegna peningaleysis. Sjálfur þarf hann stundum að fara út í vitlaus veður og þykir þá gott að vita af því að björgunarsveitir eru til taks.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku