Kaupmáttur launa hefur rýrnað um tæp 6 prósent á fimm árum og ráðstöfunartekjurnar hafa rýrnað ennþá meira. Hagfræðingur Alþýðusambandsins segir að brýnt að bæta úr þeim þungu búsifjum sem heimilin hafi orðið fyrir.
Alþýðusambandið hefur reiknað út fyrir fréttastofu breytinguna sem orðið hefur á kaupmætti dagvinnu launa frá því í desember 2007. Laun hafa hækkað um tæp 33 prósent á tímabilinu. Verðbólgan hefur hins vegar verið meiri eða 41 prósent. Niðurstaðan er sú að kaupmátturinn hefur rýrnað um nærri 6 prósent.
Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur ASÍ, segir að fólk finni fyrir þessari kaupmáttarrýrnun. Kaupmáttarhrunið sem orðið hafi í kjölfar bankahrunsins sé að vísu að einhverju leyti að ganga til baka, en það muni um 6 prósentum.
Ólafur Darri bendir á að skoða þurfi allar þær tekjur sem fólk hafi til ráðstöfunar en ekki bara laun. Þær hafi rýrnað miklu meira frá hruni. Verkefnið sé að vinna kaupmáttinn tilbaka og verið sé að reyna það.
Ólafur Darri segir að enn sem komið er séu því lífskjörin hér lakari en fyrir hrun. Í hruninu hafi tapast ein króna af hverjum tíu af verðmætasköpun okkar, þ.e.a.s. samfélagsins í heild. Mjög margir hafi orðið fyrir þungum búsifjum í hruninu og það mun taka langan tíma að vinna okkur upp úr því mikla áfalli sem við urðum fyrir 2008.
