Skipstjóri á Herjólfi segir aðstæður við Landeyjahöfn hafa versnað í haust. Kröftugar öldur færi skipið stundum hættulega nærri varnargörðum, eða sem nemi 5-10 metrum. Nauðsynlegt sé að verja hafnarmynnið til að koma í veg fyrir að skipið verði stjórnlaust þar.
Enn fjölgar farþegum
Farþegum Herjólfs um Landeyjahöfn í sumar fjölgaði um 9% frá síðasta sumri. 250.000 manns hafa siglt með ferjunni það sem af er ári en endanlegur farþegafjöldi ársins veltur á því hvernig siglingar um höfnina ganga í vetur.
Nýtt sandrif og fjaran gengið fram
Með haustinu hefur grynnkað á sandrifi fyrir utan Landeyjahöfn segir Steinar Magnússon, skipstjóri á Herjólfi. Nýtt sandrif hafi myndast fyrir framan höfnina og þá hafi fjaran gengið fram beggja vegna hafnargarðanna. Allt leiði þetta til þess að meira brot verði í sunnanáttum en áður. Hann segir skipið í raun vera stjórnlaust þegar kröftug alda skelli aftan á horni þess og flytji það til hliðar. Stundum sé fjarlægð milli skips og varnargarðs aðeins 5-10 metrar.
Alltaf hættulegt að missa stjórn
Steinar segir ennfremur að þegar aldan sé lengri en sem nemur lengd Herjólfs, og jafnvel á annað hundrað metra, þá eigi skipstjórar í erfiðleikum með að halda skipinu í miðri innsiglingarrennunni. Aðspurður hvort hætta sé á ferðum við þessar aðstæður segir Steinar: „Það er alltaf hætta þegar við hættum að hafa stjórn á skipinu. Þess vegna þarf að verja hafnarmynnið þannig að við höfum fulla stjórn.“
Frekari framkvæmdir ekki ákveðnar
Hjá Siglingastofnun hefur ekki verið ákveðið með frekari framkvæmdir við höfnina. Fyrir liggur að sandur hefur safnast fyrir þar undanfarnar vikur. Næsta skref er að semja um dýpkun hafnarinnar í vetur. Siglingastofnun bíður eins og fleiri eftir frekari fregnum um nýtt skip. En Steinar Magnússon, skipstjóri Herjólfs, er ekki í vafa um það að núverandi aðstæður séu einnig óhentugar fyrir væntanlegt skip. „Aldan er kraftur sem alltaf er erfitt að eiga við, þó nýtt skip verði minna og grunnristara,“ segir Steinar.
