Bandaríska tölvufyrirtækið Apple fékk yfir tvær milljónir pantana á nýja iPhone 5 snjallsímanum fyrsta sólarhringinn eftir að byrjað var að taka á móti pöntunum.
Það var snöggtum meira en búist var við. Apple kynnti nýju útgáfuna á miðvikudag og á föstudag var byrjað að taka við pöntunum. Byrjað verður að afgreiða símana á föstudag. Að sögn Apple fá flestir þeirra sem pöntuðu fyrsta sólarhringinn sinn síma þá en afgreiðslu annarra verður að fresta fram í næsta mánuð. Fyrstu símarnir verða afhentir í Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakklandi og Þýskalandi.
