Körfuboltalandsliðið í Skemmtigarðinum

Frétt birt 21. August 2012 • 00:08

Karlalandsliðið í körfubolta dreifði huganum með því að reyna fyrir sér í körfuboltakassanum í Skemmtigarðinum í Smáralind á mánudag.

Liðið stendur í ströngu þessa dagana en það leikur 10 leiki á einum mánuði í undankeppni Evrópumótsins. Eftir tap gegn Serbum og frækinn útisigur á Slóvökum um helgina mætir Ísland liði Ísraels í Laugardalshöll í kvöld, þriðjudagskvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður sýndur beint á Ólympíurásinni.

RÚV ræddi við fyrirliðann Hlyn Bæringsson en viðtalið og myndir frá landsliðsmönnum reyna fyrir sér í Skemmtigarðinum má sjá með því að smella á myndina hér að ofan.

Til baka

RÚV • Efstaleiti 1 • 150 Reykjavík • Sími: 515 3000