U18 ára landslið karla í körfuknattleik sigraði Svía 84-81 í leik um 13. sætið í B-deild Evrópukeppninnar í Sarajevó í Bosníu-Hersegóvínu en mótinu lýkur í dag.
Martin Hermannsson var atkvæðamestur í íslenska liðinu með 26 stig og 6 fráköst, Matthías Orri Sigurðarson skoraði 18 stig og tók 3 frákösk og Valur Orri Valsson bætti við 12 stigum og 4 fráköstum.
Íslenska liðið vann fimm leiki á mótinu en tapaði fjórum.
