Sigurþór og Guðrún Brá í forystu

Frétt birt 18. August 2012 • 20:59

Sigurþór Jónsson úr GOS og Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK eru efst í karla- og kvennaflokki að loknum tveimur hringjum á fimmta móti sumarsins á Íslensku golfmótaröðinni en leikið er á Kiðjabergsvelli.

Sigurþór lék á 71 höggi eða pari í dag og er á samtals einu höggi undir pari. Ólafur Björn Loftsson úr NK og Einar Haukur Óskarsson úr GK eru jafnir í 2.-3. sæti á pari.

Guðrún Brá lék á 77 höggum í dag eða sex höggum yfir pari er á samtals sjö höggum yfir pari. Signý Arnórsdóttir úr GK, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR og Ingunn Einarsdóttir úr GKG koma næstar á samtals ellefu höggum yfir pari.

Lokahringurinn verður spilaður á morgun.

Staða efstu kylfinga í karlaflokki:
1 Sigurþór Jónsson GOS 70-71=141 -1
2.-3. Ólafur Björn Loftsson NK 70-72=142 par
2.-3. Einar Haukur Óskarsson GK 69-73=142 par
4. Andri Þór Björnsson GR 68-75=143 +1
5.-6. Guðjón Henning Hilmarsson GKG 74-71=145 +3
5.-6. Páll Theodórsson GKJ 72-73=145 +3

Staða efstu kylfinga í kvennaflokki:
1. Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK 72-77=149 +7
2.-4. Signý Arnórsdóttir GK 80-73=153 +11
2.-4. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR 77-76=153 +11
2.-4. Ingunn Einarsdóttir GKG 76-77=153 +11
5. Ingunn Gunnarsdóttir GKG 75-81=156 +14

Til baka

RÚV • Efstaleiti 1 • 150 Reykjavík • Sími: 515 3000