Valdís Þóra Jónsdóttir, Íslandsmeistari kvenna í höggleik, hafnaði í 7.-8. sæti í kvennaflokki á Finnish Amateur Championship golfmótinu sem lauk í Finnlandi í dag. Valdís endaði á samtals fimm höggum yfir pari, þremur höggum frá efstu konu.
Rúnar Arnórsson varð í 16.-20. sæti í karlaflokki en hann lauk leik á samtals einu höggi yfir pari, Arnór Ingi Finnbjörnsson varð höggi á eftir Rúnari og hafnaði í 21.-22. sæti en Bjarki Pétursson varð í 25.-27. sæti á samtals fimm höggum yfir pari.
