Vanda tónlistarhússins Hörpu er ekki hægt að varpa yfir á skattgreiðendur segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, fyrrverandi borgarstjóri. Þegar borgin tók Hörpu yfir var sett skilyrði um að hún legði ekki meira fé til rekstrar hússins.
Þann 19. febrúar 2009 undirrituðu Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri og Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra undir viljayfirlýsingu þess efnis að ríki og borg tækju yfir framkvæmdir og rekstur tónlistarhússins Hörpu. Hanna Birna segir að þá hafi línur verið algjörlega skýrar um öll fjárframlög.
„Sú ákvörðun byggði á þvi að meira fjármagn færi ekki til verkefnisins en þá hafði fyrir löngu verið ákveðið. Ég efast um að borgarstjórn hefði tekið ákvörðun um að halda áfram nema þetta skilyrði hefði verið alveg skýrt,“ segir Hanna Birna.
Ný úttekt sýnir að 407 milljóna halli verður á rekstri hússins á þessu ári. Pétur J. Eiríksson, stjórnarformaður Portusar, sagði í fréttum RÚV í ársbyrjun 2010 að rekstur hússins myndi standa undir sér, húsið yrði sjálfbært og að ekki þyrfti að leita í vasa skattgreiðenda. Í dag kveður við annan tón hjá Pétri.
„Ja, það er alveg ljóst, og við sögðum það strax í desember að þessi vandi er það stór að stjórn Portusar ræður ekki við hann. Eigendur verða að koma að þessu,“ segir Pétur.
Hanna Birna segir það ekki í boði. „Það var alveg skýrt þegar borgin afgreiddi þetta að meira fjármagn færi ekki. Þetta er ekki vandamál skattgreiðenda. Það er ekki hægt að varpa þessum vanda yfir á skattgreiðendur, allavega af hálfu borgaryfirvalda var það alveg skýrt, þannig að í mínum huga er það ekki í boði,“ segir Hanna Birna.
Hún segir að ekki sé hægt að líta svo á að ríki og borg hafi verið plötuð á sínum tíma, þá hafi þessi vandi ekki legið fyrir.
„Borgin sagði: Aldrei meira fjármagn heldur en fyrir löngu hafði verið ákveðið. Þannig að það er alveg skýrt af okkar hálfu og fyrir mér liggur það ennþá þannig fyrir. Þannig að borgaryfirvöld verða að vera skýr í því: Skattgreiðendur munu ekki leggja meira fjármagn til verkefnisins, allavega ekki af hálfu Reykjavíkurborgar,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir.
