Sætur sigur á Svíum

Frétt birt 2. August 2012 • 21:47

Ísland vann í kvöld fyrsta sigurinn á Svíum á stórmóti í handbolta frá árinu 1964. Ísland vann eins marks sigur í leik liðanna á Ólympíuleikunum, 33-32 eftir að hafa náð mest 7 marka forystu.

Svíar byrjuðu betur og náðu mest þriggja marka forystu snemma leiks, 6-3 en þá skoraði íslenska liðið þrjú mörk í röð og jafnaði metin. Jafnt var í 8-8 og eftir það náði Ísland forystu sem liðið lét ekki af hendi.

Lokamínúturnar voru þó óþarflega spennandi því Ísland var með 6 marka forystu þegar 9 mínútur voru eftir en skoraði aðeins tvö mörk eftir það gegn 7 mörkum Svía.

Ísland var fjórum mörkum yfir í hálfleik 17-13 og náði mest 7 marka forystu í síðari hálfleik. Svíar náðu að minnka muninn niður í eitt mark í lokin en Ásgeir Örn Hallgrímsson gulltryggði sigurinn þegar hann kom Íslandi í 33-31 á lokasekúndunum.

Aron Pálmarsson var markahæstur með 9 mörk, Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 6 og þeir Alexander Petersson og Ólafur Stefánsson 5 mörk hvor.

Þetta er fyrsti sigur Íslands á Svíum á stórmóti síðan 1964.

Dómarar leiksins komu frá Makedóníu og ráku leikmenn íslenska liðsins 8 sinnum af velli í 2 mínútur gegn þremur brottvísunum Svía.

Viðtöl við leikmenn og Guðmund Guðmundsson þjálfara eru væntanleg hér á vefinn síðar í kvöld.

Til baka

RÚV • Efstaleiti 1 • 150 Reykjavík • Sími: 515 3000