Strákarnir höfnuðu í 15. sæti á EM

Frétt birt 21. July 2012 • 12:47

Íslenska U18 ára landslið karla í handknattleik sigraði lið Finna 27-26 í leik um 15. sætið á Evrópumótinu í Austurríki í dag en hálfleikstölur voru 13-13.

Adam Baumruk var markahæstur í íslenska liðinu með níu mörk og Starri Friðriksson gerði fimm mörk, Gunnar M. Þórsson og Janus Daði Smárason skoruðu báðir þrjú mörk og Stefán Darri Þórsson tvö mörk en þeir Valdimar Sigurðsson, Ólafur Ægir Ólafsson, Vilhjálmur Geir Hauksson, Alexander Örn Júlíusson og Arnar Freyr Dagbjartsson voru allir með eitt mark. Þá varði Bjarki Snær Jónsson 15 skot í markinu.

Ísland endaði þar með í 15.sæti í mótinu.

Til baka

RÚV • Efstaleiti 1 • 150 Reykjavík • Sími: 515 3000