Íslendingar í eldlínunni í Noregi

Frétt birt 15. July 2012 • 21:22

Birkir Már Sævarsson var allan tímann inná í liði Brann sem vann Odd Grenland örugglega 6-2 á heimavelli í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Indriði Sigurðsson og félagar í Viking sigruðu Hönefoss, lið Kristjáns Arnar Sigurðssonar og Arnórs Sveins Aðalsteinssonar, 2-1 á heimavelli. Allir léku þeir Indriði, Kristján og Arnór allan leikinn með sínum liðum.

Bjarni Ólafur Eiríksson lék allan tímann með Stabæk sem tapaði fyrir Sogndal 3-1 á útivelli og þá var Andrés Már Jóhannesson á varamannabekk Haugesund sem tapaði fyrir Rosenborg 1-0 á heimavelli.

Stöðuna í norsku deildinni má sjá hér.

 

Til baka

RÚV • Efstaleiti 1 • 150 Reykjavík • Sími: 515 3000