Gera heimildarmynd um tískuvita

Frétt birt 15. July 2012 • 18:18

Kvikmyndagerðarmennirnir Þorkell Harðarson og Örn Maríno Arnarson ætla að gera heimildamynd um svokallaða „trendsettara" eða tískuvita. Myndin skartar viðtölum við helstu sérfræðinga heims á þessu sviði en tískuvitar hafa mikil áhrif á hvað er í tísku og hvað ekki.

Þorkell og Örn gerðu síðast heimildamyndina Feathered Cocaine. Hún olli talsverðu fjaðrafoki í Bandaríkjunum þegar hún var sýnd þar fyrir tveimur árum því aðalsöguhetja myndarinnar hélt því fram að hún vissi hvar Osama bin Laden feldi sig.

Örn og Þorkell verða hins vegar á allt öðrum slóðum í nýjustu heimildamynd sinni sem gefið hefur verið nafnið Trend Beacon.„Þessi mynd fjallar um tískuvitana í hönnunar- og tískuheiminum en þetta er fólk sem leggur það á sig að kafa ofaní það sem er að gerast í heiminum og kemur svo fram með hugmyndir sem síðan gerast ekkert fyrr en eftir tvö ár. Þetta er svolítið dulinn heimur sem fáir vita um.“


Dreifingarfyrirtæki hafa þegar sýnt myndinni athygli þrátt fyrir að tökur séu enn ekki hafnar og segir Örn það sýna hversu mikinn áhuga fólk hefur á þessari stétt. Tískuvitar eru almennt taldir hafa mikil völd þegar kemur að hönnun og arkitektúr og Örn og Þorkell hafa þegar fengið aðgang að helstu tískuvitum heims. „Við munum tala við Christine Boland, sem er hollenskur tískuviti, David Sha og Ravash, sem hefur verið Prada innan handar og svo ræðum við Lee Edengaard, sem er hálfgerð goðsagnapersóna í þessum heimi.“

Til baka

RÚV • Efstaleiti 1 • 150 Reykjavík • Sími: 515 3000