Borgin skoðar kaup á Perlunni

Frétt birt 26. June 2012 • 17:27

Borgaryfirvöld hafa fengið frest fram á haust til að kanna kaup á Perlunni. Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, segir að málið sé á frumstigi.

Salan á Perlunni er til skoðunar hjá borgaryfirvöldum. Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, segir að tæpt hafi verið á því í borgarráði í síðustu viku og ákveðið að ræða það betur á næsta fundi borgarráðs sem er á fimmtudag.

Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar, segir að borgin sé skoða kaupin ofan í kjölinn því annars hefði hún bara afþakkað. Enginn verðmiði sé á Perlunni en í haust hafi borist tilboð upp á tæpar sautján hundruð milljónir. Ekki hafi verið hægt að ganga að því vegna fyrirvara sem tengdust tilboðinu.

Til baka

RÚV • Efstaleiti 1 • 150 Reykjavík • Sími: 515 3000