Geir Jón Þórisson í Vestmannaeyjum, fyrrverandi yfirlögregluþjónn í Reykjavík, hefur ákveðið að bjóða sig fram í embætti annars varaformanns Sjálfstæðisflokksins.
Kosið verður í embættið í fyrsta sinn á flokksráðsfundi undir lok mars. Áður hafa Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, og Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, lýst yfir framboði.
