Makedóníumenn í fimmta sæti

Frétt birt 27. January 2012 • 16:17

Makedóníumenn tryggðu sér rétt í þessu fimmta sætið á Evrópumótinu í handknattleik í Serbíu með dramatískum eins marks sigri á Slóvenum 28-27. Fimmta sætið gefur Makedóníumönnum rétt á því að leika í umspili fyrir Ólympíuleikana í vor.

Kiril Lazarov skoraði átta mörk fyrir Makedóníu í leiknum og setti þar með nýtt markamet í lokakeppni Evrópumóts en hann skoraði alls 61 mark á mótinu. Gamla metið var í eigu Ólafs Stefánssonar sem skoraði 58 mörk á Evrópumótinu árið 2002.

Til baka

RÚV • Efstaleiti 1 • 150 Reykjavík • Sími: 515 3000