Í dag var tilkynnt um úrvalslið umferða 1-9 í úrvalsdeild kvenna í handknattleik. Valskonan Dagný Skúladóttir var valin besti leikmaður umferðanna og Einar Jónsson, þjálfari Fram, var valinn besti þjálfarinn.
Lið umferða 1-9:
- Markvörður: Guðný Jenný Ásmundsdóttir Val
- Vinstra horn: Dagný Skúladóttir Val
- Hægra horn: Sólveig Lára Kjærnested Stjörnunni
- Vinstri skytta: Stella Sigurðardóttir Fram
- Hægri skytta: Birna Berg Haraldsdóttir Fram
- Miðjumaður: Ester Óskarsdóttir ÍBV
- Línumaður: Anna Úrsúla Guðmundsdóttir Val
Þjálfari: Einar Jónsson Fram
