Í dag eru undanúrslitaleikirnir á Evrópumótinu í handknattleik í Serbíu. Annars vegar mætast Serbía og Króatía en Spánn og Danmörk hins vegar. Þá leika Makedónía og Slóvenía einnig um fimmta sætið.
Leikur Makedóníumanna og Slóvena hefst klukkan14.15 og verður sýndur á ruv.is/beint. Leikur Dana og Spánverja er klukkan 16.45 en leikur Serba og Króata klukkan 19.15 og verða þeir báðir sýndir beint á RÚV.
