Óeirðir í Serbíu

Frétt birt 26. January 2012 • 22:43

Óttast er að uppúr sjóði í Belgrad í tengslum við viðureign Serba og Króata í undanúrslitum Evrópumótsins í handknattleik í Serbíu á morgun.

Boris Tadic, forseti Serbíu, hefur hvatt þjóð sína til að sýna stillingu og fram kemur í serbneskum fjölmiðlum að yfirvöld í Króatíu hafi ráðið löndum sínum frá því að fara yfir landamærinn og á leikinn. Nokkuð hefur verið um óeirðir í borginni Novi Sad þar sem keppni í milliriðlum var haldin en kveikt var í fjórum bifreiðum með króatískum númerum þar í nótt ásamt því að hópur serbneskra þjóðernissinna veittist að nokkrum Króötum þar sem þeir voru að koma af viðureign Króata og Ungverja í gær. Tvær bifreiðanna sem kveikt var í voru í eigu handknattleikssambands Króatíu og hafa þrettán manns verið handteknir í tengslum við málið að sögn lögreglu í Novi Sad.

Til baka

RÚV • Efstaleiti 1 • 150 Reykjavík • Sími: 515 3000