Íslensku dómararnir Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson munu ekki dæma fleiri leiki á Evrópumótinu í handknattleik í Serbíu.
Hlynur er með flensu og ekki í standi til þess að sinna dómgæslu og því munu þeir félagar vera á heimleið. Anton og Hlynur dæmdu þrjá leiki á mótinu og þóttu komast vel frá þeim verkefnum.
