Fyrsta mynd leikstjórans Hafsteins Gunnars Sigurðssonar í fullri lengd, Á annan veg, verður sýnd í Kviksjá sunnudaginn 9. september. Myndin er tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs.
Á annan veg er lágstemmd og mannleg kómedía með dramatískum undirtón. Á afskekktum fjallvegum, á 9. áratug síðustu aldar, læra tveir starfsmenn Vegagerðarinnar að þróa með sér vináttu þegar þeir koma að vegamótum í lífinu. Áður en myndin hefst ræðir Sigríður Pétursdóttir við leikstjórann.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is









