Beint í leiđarkerfi.
Ríkisútvarpið á Egilsstöðum er ein af þremur deildum Ríkisútvarpsins utan höfuðborgarsvæðisins og heyrir hún undir Fréttastofu Ríkisútvarpsins. Fréttastjóri Ríkisútvarpsins er Óðinn Jónsson.
Frá þriðjudegi til föstudags sendir Svæðisútvarpið á Austurlandi út þrjátíu og fimm mínútna langan frétta- og dægurmálaþátt, frá klukkan 17.25 til 18.00. Á dagskrá eru fréttir af Austurlandi og umfjöllun um dægurmál í fjórðugnum. Fjallað er um atburði líðandi stundar útfrá ýmsum sjónarhornum og rætt við Austfirðinga og gesti um það sem hæst ber hverju sinni.
Auk fréttamanna Svæðisútvarpsins kemur fréttaritari á Hornafirði reglulega inn með efni þaðan. Þá sjá starfsmenn Svæðisútvarpsins um fréttaþjónustu á Austurlandi fyrir Fréttastofu Ríkisútvarpsins og framleiða þætti og efni fyrir allar rásir Ríkisútvarpsins, Rás 1, Rás 2 og Sjónvarpið.
Hægt er að hlusta á útsendingar Svæðisútvarpsins á ruv.is og yfirlit austfirskra frétta er að finna á síðu 146 í textavarpinu og á ruv.is.
Fréttamenn Svæðisútvarpsins á Austurlandi eru þau Ásgrímur Ingi Arngrímsson og Berglind Häsler.
Auglýsingastjóri er Hafdís Erla Bogadóttir.
Tæknimaður er Heiður Ósk Helgadóttir og myndatökumaður Sjónvarps er Hjalti Stefánsson.
Svæðisútvarpið sendir út á Rás 2, þriðjudaga til föstudaga, kl. 17.25 - 18.00.
Ríkisútvarpið á Austurlandi,
Miðvangi 2-4,
700 Egilsstaðir.
Sími 471-2300
Auglýsingasími: 471 2330
Bréfasími: 471 1996
Netfang: ruvaust@ruv.is
Forstöðumaður RÚVAUST er Ásgrímur Ingi Arngrímsson