Beint í leiđarkerfi.

Þetta er mesti samdráttur í rússnesku efnahagslífi í 15 ár.
Nánar »
Þýska stjórnin verður að gera allt sem í hennar valdi stendur til að afla gagna í baráttunni gegn skattsvikum. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sagði þetta í dag eftir að uppljóstrari bauðst til að selja þýsku stjórninni leynilegar upplýsingar frá svissneskum banka.
Nánar »
Skortur á hvítlauk í Kína veldur því að verðið hefur meira en tífaldast á einu ári. Fólki var talin trú um að hann kæmi í veg fyrir að það veiktist af svínainflúensu.
Nánar »
Framtíðin liggur í hollustunni, samkvæmt því sem forstjóri gosdrykkjarisans PepsiCo segir. Indra Nooyi vill þrefalda hagnaðinn af sölu holls varnings á borð við hafra og ávaxtasafa.
Nánar »
Hagnaður hugbúnaðarrisans Microsoft jókst um 60% á síðasta ársfjórðungi 2009.
Nánar »
Þýski bílaframleiðandinn BMW tilkynnti í dag að samdráttur hefði orðið í sölu í fyrra. BMW seldi tæplega 1,3 milljónir nýrra bíla árið 2009, sem er 10,4% minna en árið á undan. Þrátt fyrir þennan samdrátt gera forráðamenn fyrirtækisins ráð fyrir að hagnaður verði af rekstrinum, en aðalfundur BMW verður í mars-mánuði.
Nánar »
Samningaviðræður standa enn yfir í Stokkhólmi um að hollenski bifreiðaframleiðandinn Spyker kaupi sænsku SAAB bílasmiðjuna. Í Hollandi hafa viðskipti með hlutabréf í Spyker verið stöðvuð.
Nánar »
0,1% hagvöxtur mældist í Bretlandi síðustu þrjá mánuði ársins 2009. Samkvæmt skilgreiningu hagfræðinnar er efnahagslægðinni þar í landi lokið, að sinni að minnsta kosti.
Nánar »
Hagnaður bandaríska tölvufyrirtækisins Apple síðustu þrjá mánuði liðins árs sló öll met. Hagnaðurinn jókst um 50% milli ára og nam næstum 3,4 miljörðum dollara. Það eru ríflega 430 miljarðar króna. Apple vörur njóta gífurlegra vinsælda um þessar mundir, til að mynda Iphone-farsímar. Apple seldi næstum 9 milljónir slíkra á síðasta ársfjórðungi.
Nánar »
Bandaríski bílaframleiðandinn General Motors er að ganga frá samkomulagi við hollenska fyrirtækið Spyker Cars um sölu á sænsku SAAB-bílasmiðjunum.
Nánar »
Bandaríski innistæðu tryggingasjóðurinn stöðvaði í gærkvöld starfsemi fimm banka vítt og breitt um Bandaríkin. Allir voru yfirteknir af öðrum bankastofnunum.
Nánar »
Verð á hlutabréfum hefur lækkað víða um heim í morgun og heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði einnig. Ástæðan er rakin til áforma Baracks Ástæðan er rakin til áformaBandaríkjaforseta um að herða reglur um bankastarfsemi. Verð á olíu fór niður fyrir 76 dollara á tunnu á markaði vestanhafs í morgun, en verðið komst í 84 dollara á tunnu í byrjun mánaðarins.
Nánar »
Bandaríski bílaframleiðandinn General Motors ætlar að loka Opel-bílaverksmiðjunum í Belgíu í sumar. Um 2,600 manns missa vinnuna. General Motors ætlar einnig að fækka starfsmönnum og draga úr framleiðslu víðar í Evrópu, um allt að fimmtung.
Nánar »
Hagvöxtur í Kína var 8,7% í fyrra, mun meiri en gert var ráð fyrir. Mestur var hagvöxturinn á síðasta fjórðungi ársins. Þá nam hann 10,7%.
Nánar »
Sala nýrra fólksbíla í Danmörku var hátt í 40% meiri í desember síðastliðnum en í sama mánuði 2008.
Nánar »
Stjórn japanska flugfélagsins, Japan Airlines, samþykkti í dag að óska eftir greiðslustöðvun. Að sögn fjölmiðla í Japan er útlit fyrir að fimmtán þúsund starfsmenn fyrirtækisins missi vinnuna.
Nánar »
Óvíða er landrými af jafn skornum skammti og í Japan. Þar gildir því að gera sem mest úr því sem til umráða er og það kunna Japanir flestum þjóðum betur.
Nánar »
Forstjóri Eurostar, sem annast rekstur Ermarsundslestanna, tilkynnti í dag að stjórn fyrirtækisins búist við að skaðabætur sem greiða þurfi vegna aflýstra ferða, seinkana og alls kyns óþæginda sem urðu í desember geti numið allt að tíu milljónum punda, jafngildi tveggja milljarða króna.
Nánar »
Netfyrirtækið Google hefur upplýst að reynt hafi verið að brjótast inn í kerfi fyrirtækisins í Kína til þess að reyna að fá aðgang að tölvupósti andófsmanna og baráttu manna fyrir mannréttindum. Varaforstjóri Google segir að innbrotstilraunin hafi ekki tekist en vegna hennar hafi fyrirtækið ákveðið að taka ekki lengur þátt í ritskoðun Google vefsins í Kína og að það kunni að þurfa að loka skrifstofum sínum í landinu.
Nánar »
Japan Air Lines, stærsta flugfélag í Asíu, á nú í verulegum erfiðleikum og gæti verið tekið til gjaldþrotaskipta á næstu dögum. Verð hlutabréfa í félaginu féll um nærri helming í dag.
Nánar »