|
Fyrst birt: 18.11.2009 13:36
Síðast uppfært: 18.11.2009 14:42
Hugbúnaðarfyrirtæki sameinastHugbúnaðar- og upplýsingatæknifyrirtækin Skýrr, Kögun, Eskill og Landsteinar Strengur verða sameinuð. Starfsmönnum fyrirtækjanna verður tilkynnt um þetta nú í hádeginu. Nýja fyrirtækið heitir Skýrr. Gestur G. Gestsson, verðandi forstjóri nýja fyrirtækisins, segir tilganginn vera að stofna öflugt hugbúnaðar- og upplýsingatæknifyrirtæki. 320-330 manns starfa hjá nýja fyrirtækinu, sem sé svipaður fjöldi og á hjá fyrirtækjunum fjórum. Vegna hagræðingar fækki þó starfsfólki í stoðsviði. |
