Prenta fréttSenda fréttHorfa á myndskeið

Óvenjulegt verkefni í Listaháskólanum

Óvenjulegt verkefni í Listaháskólanum

Verkefni á fyrsta ári í leiklistardeild listaháskólans lauk međ ţví ađ karlnemandi pissađi yfir stúlku. Forsvarsmenn skólans vilja ekki dćma um ţađ hvort ţarna hafi veriđ fariđ yfir velsćmismörk.

Verkefni á fyrsta ári í leiklistardeild listaháskólans lauk með því að karlnemandi pissaði yfir stúlku. Forsvarsmenn skólans vilja ekki dæma um það hvort þarna hafi verið farið yfir velsæmismörk.

Nemendurnir fengu u.þ.b. klukkustund til að klára verkefnið áður en þau sýndu það frammi fyrir bekknum. Þau eru á fyrsta ári á leiklistarbraut og á nýrri námslínu sem heitir "Fræði og framkvæmd." Í þessu tiltekna verkefni voru þrír drengir og ein stúlka. Drengirnir voru í læknasloppum en stúlkan nakin. Þeir klipptu hluta af hárinu af henni, því næst klipptu þeir af henni skapahár en verkefninu lauk með því að einn drengjanna kastaði af sér þvagi yfir stúlkuna.

Una Þorleifsdóttir var kennari í tímanum en hún sagði í samtali við fréttastofu Sjónvarps í dag að nemendum hefði alls ekki verið uppálagt að fara þessa leið. Það hefði verið ákvörðun þeirra sjálfra hvernig verkefnið var leyst. Hún bar fyrir sig trúnaði á milli kennara og nemenda þegar hún var spurð að því hvernig hefði verið tekið á þessu tiltekna atriði að því loknu.

Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskóla Íslands, sagðist ekki hafa heyrt af þessu máli og vísaði á deildarforsetann Ragnheiði Skúladóttur. Hann ekki tjá sig um það að öðru leyti en því að hann vissi ekki til að nemandi hefði kvartað formlega. Undir það tekur Ragnheiður. Hún segir engan hafa kvartað yfir þessu verkefni innan skólans. Hún vildi ekki tjá sig um það hvort verkefni nemendanna væri eðlilegt eða innan velsæmismarka.

frettir@ruv.is


RÚV á TwitterSenda á Facebook

Nýjustu fréttir




    9. febrúar 2010


    Streymiţjónusta