Afar raunveruleg og viðvarandi hryðjuverkaógn steðjar að Evrópubúum, segir innanríkisráðherra Bretlands. Þörf sé á aðgerðum til að sporna gegn hættunni.
|
John Reid á fundinum í dag |
John Reid, innanríkisráðherra Bretlands, segir afar raunverulega og viðvarandi hryðjuverkaógn steðja að Evrópubúum. Á fundi sínum í dag ræddu innanríkisráðherrar sex Evrópusambandsríkja hryðjuverkaógnina og leiðir til að sporna gegn henni.
Fjögur mál voru á dagskrá ráðherrafundarins. Samhæfing öryggismála í Evrópu í flugi og flutningum með öðrum farartækjum. Hvernig bregðast ætti við sprengiefni í fljótandi formi. Samvinna leyniþjónustustofnana og birtingarmyndir íslam í Evrópu, en Reid sagði að heimurinn stæði frammi fyrir óbilgjarnri og ofbeldisfullri alræðishyggju, sem væri á góðri leið með að gjörbreyta íslam. Hann sagði að öryggi þyrfti að herða, og fólk þurfi að sætta sig við að jafnvægis verði leitað á milli réttinda sem það hefur hingað til notið og öryggissjónarmiða.
Ráðherra dómsmála í Evrópusambandinu, Franco Frattini, sagði að skoða þyrfti leiðir til að flokka fólk í áhættuhópa, til að auðvelda eftirlit á flugvöllum og landamærum. Hann neitaði því að fólki yrði mismunað eftir trú eða hörundslit með slíkri flokkun. Hann lagði einnig til að evrópsk stjórnvöld lokuðu fyrir vefsvæði á internetinu þar sem upplýsingar um sprengjugerð væri að finna.
John Reid tók undir að efla þyrfti eftirlit á internetinu og sagði að í Evrópu þyrfti að gera netið fjandsamlegt hryðjuverkamönnunum. Á fundinum var lagt til að setja upp sérstaka Evrópusambandssveit sem hefði það hlutverk að berjast gegn hryðjuverkum í öllum sambandsríkjunum, og aðstoða einstök ríki í sinni baráttu. Evrópusambandið á eftir að fjalla nánar um þá hugmynd og hvernig eftirliti með sprengjum á vökvaformi verður háttað.
frettir@ruv.is