Beint í leiðarkerfi.
Breski söngvarinn og lagahöfundurinn Morrissey, er á leið hingað til lands og heldur tónleika í Laugardalshöll í Reykjavík 12. ágúst. Morrissey hefur verið meðal fremstu tónlistarmanna Bretlandseyja undanfarna tvo áratugi.

Hann fór fyrir rokkhljómsveitinni The Smiths en hún naut mikilla vinsælda á 9. áratugnum. Að því loknu hóf hann vel heppnaðan sólóferil og kom meðal annars fram á nýafstaðinni Hróarskelduhátíð við góðar undirtektir. Miðasala á tónleika Morrissey hefst eftir helgina.
frettir@ruv.is