Prenta fréttSenda fréttHlusta á hljóðskrá

Ekki hægt að kenna láglaunafólki um verðbólgu

Ekki hægt að kenna láglaunafólki um verðbólgu

Fráleitt er að kenna hinum lægst launuðu um verðbólguna enda er hún komin af stað án þess að það fólk hafi fengið eitt eða neitt, segir Álfheiður Bjarnadóttir, talsmaður starfsfólks á hjúkrunarheimilum. Fyrir páska var frestað boðuðu setuverkfalli á hjúkrunarheimilunum, eftir að ákveðið var að setjast að samningaborði. Álfheiður hefur mikla trú á því atvinnurekendur ætli að bæta kjör þeirra sem lægst hafa launin þannig að þau verði ekki lakari en hjá sveitarfélögunum og að þetta skýrist á morgun.

Álfheiður segir að benda megi á ýmislegt sem frekar eigi sök á því að verðbólgunni, en kröfur láglaunafólksins, sem ekkert hafi fengið. Og Álfheiði líkar heldur ekki að talað sé um það eins og náttúrlögmál að hækkanir launa þeirra lakast settu hljóti að fara upp allan launastigan. Slíkt tal sé líka pólitík. Hins vegar væri rétt að festa í kjarasamninga að hækkanir hálaunafólks hefðu áhrif því þá yrði minna um þær. Talskona starfsfólks á hjúkrunarheimilum vonast til að viðbrögð við launakröfum skýrist á morgun. Hún segir ábyrgð á verðbólgunni liggja annars staðar en hjá láglaunafólki. Sú kenning sé pólitík, nær væri að taka upp aðrar reikningsaðferðir.

frettir@ruv.is

RÚV á TwitterSenda á Facebook

Nýjustu fréttir

    9. febrúar 2010

    Streymiþjónusta