Beint í leiðarkerfi.
Landhelgisgæslan þarf að bæta flugvél og þyrlu við flota sinn, til að geta sinnt almennu eftirliti, leit og björgun hér á landi og á hafinu kringum landið, þegar flugvélar og þyrlur bandaríska hersins fara af landi brott. Þetta kom fram í samantekt sem Landhelgisgæslan lagði fram í fyrrahaust.
Landhelgisgæslan þarf að bæta flugvél og þyrlu við flota sinn, til að geta sinnt almennu eftirliti, leit og björgun hér á landi og á hafinu kringum landið, þegar flugvélar og þyrlur bandaríska hersins fara af landi brott. Þetta kom fram í samantekt sem Landhelgisgæslan lagði fram í fyrrahaust. Landhelgisgæslan hefur yfir að ráða tveimur þyrlum, TF-SIF, sem er rúmlega 20 ára gömul og TF-LÍF, sem kom til landsins árið 1995. Flugvél gæslunnar er 30 ára gömul. Flugvélin verður endurnýjuð innan 2 ára, en ekki hefur verið tilkynnt að kaupa skuli nýjar þyrlur. Í samantekt Gæslunnar frá í haust, kom fram að þegar bandaríska hersins nyti ekki lengur við, þyrfti 2 langdrægar flugvélar og 3 langdrægar þyrlur, sambærilegar TF-LÍF. Kostnaður við að kaupa ný loftför eins og þau sem Gæslan telur sig þurfa yrði um sjö miljarðar króna, og einnig þyrfti að fjölga starfsmönnum flugdeildarinnar úr 30 í 50. Þegar ekki verður hægt að leita til þyrlusveitar hersins, við neyðarástand á sjó eða landi, þarf að tryggja að Gæslan hafi alltaf þyrlu til taks. Tæknistjóri flugdeildar Landhelgisgæslunnar hefur sagt að ekki sé nægilegt fé til að reka flugvél og þyrlur Gæslunnar. Hann sagði stöðu sinni lausri um síðustu mánaðarmót þar sem hann treysti sér ekki til að tryggja flugöryggi við núverandi ástand. Fyrir skömmu voru báðar þyrlurnar í viðgerð samtímis í hátt í viku. Ef slíkt kemur fyrir þegar þyrlur bandaríska hersins eru farnar, verður eina varaskeifan, að óbreyttu, dönsk herþyrla. Yfirleitt er ein þyrla á dönskum herskipum við Grænland, en þó ekki alltaf.
frettir@ruv.is