Skólahjúkrunarfræðingar á Akureyri hafa fundið fyrir auknu álagi að undanförnu. Skerða þurfti stöðuhlutfall skólahjúkrunarfræðinga í grunnskólum bæjarins í haust en sú skerðing hefur nú gengið til baka.
Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdarstjóri Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri segir það þekkt að álag vaxi tímabundið í grunnskólunum og ekki sé öruggt að rekja megi aukið álag nú til ástandsins í samfélaginu. Skerða þurfti stöðuhlutfall skólahjúkrunarfræðinga í grunnskólum Akureyrar á haustmisseri tvöþúsund og níu en frá áramótum hafa stöðuhlutföllin verið færð til fyrra horfs. Margrét segir að fylgst verði vel með þróun mála en ekki verði gripið til sérstakra aðgerða eins og staðan er í dag.