Men at Work í vondum málum

Alríkisdómstóll í Sydney í Ástralíu hefur úrskurðað að flautustef lagsins Down Under með áströlsku hljómsveitinni Men At Work sé stolið. Hljómsveitinni beri að greiða rétthöfum sönglagsins Kookaburra Sits In The Old Gum Tree hæfilegar skaðabætur. Síðarnefnda lagið var samið árið 1934 og var um áratuga skeið vinsælt barnalag í Ástralíu.

Höfundur þess, Marion Sinclair, er látin, en fyrirtækið Larrikin Music fer með höfundarréttinn. Það ætlar að krefjast sextíu prósenta af tekjunum, sem lagið Down Under hefur skilað höfundunum frá því að það kom út snemma á níunda áratug síðustu aldar. Lagið naut gífurlegra vinsælda víða um heim á sínum tíma og var meðal annars flutt á lokahátíð Ólympíuleikanna í Sydney árið 2000. Réttarhöld í skaðabótamálinu hefjast síðar í þessum mánuði.

11. mars 2010

Streymiþjónusta