Í haust verður gefin út bókin Íslenzkir fuglar eftir Benedikt Gröndal. Bókin hefur geyma litaðar teikningar Benedikts af 100 fuglum ásamt skrautskrifuðum lýsingum á þeim. Rúmlega hundrað ára gamalt handrit er nú loks komið í hendur útgefanda.
Benedikt ætlaði bókina til útgáfu og vildi með henni búa til safn teikninga af öllum íslenskum fuglum. Bókin lá frammi í Náttúgripasafni Íslands meðan Benedikt veitti því forstöðu.
Kristján B. Jónasson, útgefandi segir að fremst í bókinni sé lítill formáli um að Benedikt hefði óskað sér að Alþingi hefði styrkt útgáfu bókarinnar.
Benedikt lauk við bókina árið 1899. Kristján telur að tilviljun ráði því að bókin hafi aldrei komið út, handritið hafi lent með munum Náttúrugripasafnsins sem Náttúrufræðistofnun hefur varðveitt. Kristján segir nokkrar myndir úr bókinni hafa verið til sýnis en handritið sem heild sé tiltölulega óþekkt.
Kristján segir bókina mikinn fjársjóð. Hún verður gefin út í viðhafnarútgáfu í stóru broti eins og handritið er og líka í ódýrari útgáfu. Kristján segir þokka í myndunum og sérstaklega íslenskar.