Borgarfjörður bætir um betur

Fjölmörg sveitarfélög víðsvegar um landið hafa styrkt hjálparstarf á Haítí og mörg hver með því að gefa 100 krónur á hvern íbúa. Á fundi hreppsnefndar Borgarfjarðar eystri í gær var ákveðið að bæta um betur og styrkja hjálparstarfið um 200 krónur á íbúa og afhenda Rauðakrossinum upphæðina til ráðstöfunar. Í sveitarfélaginu búa 135 einstaklingar.

11. mars 2010

Streymiþjónusta