Mikill hagvöxtur í Kína í fyrra

Hagvöxtur í Kína var 8,7% í fyrra, mun meiri en gert var ráð fyrir. Mestur var hagvöxturinn á síðasta fjórðungi ársins. Þá nam hann 10,7%.

Þetta eru góð tíðindi ekki bara fyrir Kínverja heldur allt efnahagslíf heimsins. Sá böggull fylgir þó skammrifi að verðbólga jókst. Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,6% í nóvember og tæp 2% í desember eftir að hafa lækkað framan af árinu.
Þetta getur þýtt að ráðamenn í Kína grípi til aðgerða til að koma í veg fyrir of öran vöxt, þeir hafa áhyggjur af því að matur og fasteignir hækki meira en laun. Vaxtahækkun er því ekki útlokuð né að útlán verði takmörkuð.

Frá grannríkinu Japan er aðra sögu að segja, þar er talið að samdráttur hafi verið um sex af hundraði í fyrra. Hagtölur verða birtar í Japan í febrúar og þá gæti komið í ljós að kínverska hagkerfið sé orðið stærra en það japanska og hið stærsta á eftir Bandaríkjunum. Ma Jiantang, hagstofustjóri Kína, sem kynnti nýju hagtölurnar, taldi það þó ólíklegt. Hann benti á að enn byggi hálft annað hundrað milljóna manna við sárafátækt. Kína væri því enn þróunarland.

Aukinn hagvöxtur í Kína er aðalástæðan fyrir því að Alþjóðabankinn gerir ráð fyrir að hagvöxtur í heiminum verði 2,7% á þessu ári. Hann verði mun meiri í þróunarríkjum en iðnríkjum sem hafi ekki jafnað sig á versta samdrætti frá þvi í kreppunni miklu á fjórða áratug síðustu aldar. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu þar sem lýst er áhyggjum af því að það hægi á vextinum þegar stjórnvöld víða um heim hætta að veita fé inn í efnahagslífið. 

18. mars 2010

Streymiþjónusta